Copyright © Inderes 2011 - present. All rights reserved.
  • Latest
  • Markets
    • Stock Comparison
    • Financial Calendar
    • Dividends Calendar
    • Research
    • Articles
    • Transcripts
    • AGM Invitations
    • IPOs
  • inderesTV
  • Forum
  • Discovery
  • About Us
    • Our Coverage
    • Team
Regulatory press release

Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Á aðalfundi Haga hf. sem haldinn var þann 7. júní 2019 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa á næstu 18 mánuðum hlutabréf í félaginu fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun, skv. 116. gr. laga um verðbréfaviðskipti eða á grundvelli 1. tölul. 3. mgr. 115. gr. og 2. mgr. 119. gr. laga um verðbréfaviðskipti og reglugerða sem settar eru á grundvelli sömu ákvæða.

Stjórn Haga hf. hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Áætlunin mun hefjast þann 28. febrúar nk. Endurkaupin munu að hámarki nema 98.347.055 hlutum í félaginu, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 500 milljónir króna. Félagið á í dag 22.986.329 eigin hluti eða 1,89%. Áætlunin er í gildi til 9. júní 2020, eða fram að aðalfundi félagsins 2020, hvort sem fyrr verður, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í höndum Arctica Finance hf. og verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 649.496 hlutir sem jafngildir 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Nasdaq Iceland í janúar 2020. Endurgjald fyrir keypta hluti skal vera jafnt hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í hlutabréf félagsins sem liggur inni í Kauphöllinni þegar kauptilboðið er sett fram.

Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.


Nánari upplýsingar veitir Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar og samstæðu Haga hf.., í síma 530-5500.

Find us on social media
  • Inderes Forum
  • Youtube
  • Facebook
  • X (Twitter)
Get in touch
  • info@hcandersencapital.dk
  • Bredgade 23B, 2. sal
    1260 København K
Inderes
  • About us
  • Our team
  • Careers
  • Inderes as an investment
  • Services for listed companies
Our platform
  • FAQ
  • Terms of service
  • Privacy policy
  • Disclaimer
Inderes’ Disclaimer can be found here. Detailed information about each share actively monitored by Inderes is available on the company-specific pages on Inderes’ website. © Inderes Oyj. All rights reserved.